Fimiguerrero á Októberfest 2026

Fimiguerrero á Októberfest 2026
Breski rapparinn Fimiguerrero er á meðal erlendra listamanna sem stíga á svið á Októberfest í ár, en hátíðin fer fram helgina 10. til 12. september í Vatnsmýrinni. Þetta er í fyrsta sinn sem tveir erlendir listamenn koma fram sama árið á hátíðinni.
Fimiguerrero er nígerískur-breskur rappari sem hefur vakið mikla athygli í bresku underground-rappsenunni undanfarin ár. Tónlist hans er kraftmikil blanda af rage, trap og bresku rappi, og hann hefur meðal annars slegið í gegn með lögunum „Tartan“ og „5AM“ og plötunni New World Order. Nýlega gaf hann út nýjan smell sem heitir „Too High“ og heldur þar áfram að byggja upp nafn sitt á alþjóðavísu.
Koma Fimiguerrero er hluti af metnaðarfullri dagskrá Októberfest í ár, þar sem lögð er áhersla á að stækka hátíðina og gera upplifun gesta enn eftirminnilegri. Í fyrra kom Dizzee Rascal fram sem fyrsti erlendi listamaðurinn í sögu hátíðarinnar og nú er gengið enn lengra með tveimur erlendum nöfnum.
Miðasala stendur yfir á ofest.is.