Októberfest 2026
Upplýsingar
Allt sem þú þarft að vita fyrir hátíðina.
Októberfest er þriggja daga tónlistarhátíð í Vatnsmýrinni í hjarta Reykjavíkur. Þrjú kvöld af tónlist eins og hún gerist best, 10.–12. september 2026.
Viltu taka þátt í að búa til hátíðina? Skráðu þig í teymið hér.
Spurt og svarað
Miðar
Þarf ég að vera í HÍ til þess að kaupa miða á stúdentaverði?
Stúdentaverð eru fyrir alla háskólanema óháð skóla, og já líka fyrir þau sem hefja nám í haust. Eina reglan er að þú þarft að vera í háskóla, með gilt nemendaskírteini þegar þú sækir armbandið.
Þarf ég að vera í Háskóla til þess að kaupa miða?
Nei, hátíðin er opin öllum sem eru orðnir 18 ára, afsláttur er fyrir háskólanema óháð skóla.
Hvernig fæ ég miðana mína?
Miðarnir koma í tölvupósti um leið og greiðsla er staðfest, með QR-kóða fyrir hvern miða í viðhengi.
Get ég framselt miðann minn til annars?
Já. Á miðasíðunni þinni (hlekkurinn í staðfestingarpóstinum) velur þú miðann og slærð inn netfang viðtakanda. Viðtakandinn fær þá nýjan miða í tölvupósti og gamli QR-kóðinn óvirkjast sjálfkrafa.
Ég finn ekki staðfestingarpóstinn, hvað geri ég?
Athugaðu ruslpóstmöppuna fyrst. Ef pósturinn finnst ekki sendu okkur línu á midar@ofest.is og við endursendum miðana.
Fæ ég endurgreitt ef ég kemst ekki?
Miðar eru almennt ekki endurgreiddir en þú getur framselt miðann þinn hverjum sem er. Sjá endurgreiðsluskilmála neðst á síðunni.
Þurfa fylgarmenn fatlaðra að kaupa miða á hátíðina?
Fatlaðir einstaklingar geta tekið einn fylgarmann með sér inn á hátíðina, fylgdarmaður þarf ekki að kaupa miða.
Hátíðin
Hvar og hvenær er hátíðin?
Októberfest fer fram 10. til 12. september 2026 í Vatnsmýrinni fyrir framan Háskóla Íslands.
Er aldurstakmark?
Já, aldurstakmark hátíðarinnar er 18 ára.