Októberfest 2026
Skilmálar
Skilmálar miðasölu og upplýsingar um meðferð persónuupplýsinga.
Kaup og afhending
Miðar eru seldir á ofest.is og greiddir með greiðslukorti. Að lokinni greiðslu eru miðarnir sendir strax á netfangið sem gefið var upp við kaupin, sem PDF-viðhengi með QR-kóða sem skannaður er við inngang.
Vinsamlegast farðu vel yfir kaupin áður en greitt er: rétt miðategund, réttur fjöldi og réttar dagsetningar. Ekki er alltaf hægt að leiðrétta miðakaup eftir á.
Kaupandi ber ábyrgð á að gefa upp rétt netfang við kaupin. Skili miðinn sér ekki er rétt að athuga fyrst ruslpóstmöppuna. Einnig er hægt að láta endursenda miðana hvenær sem er í sjálfsafgreiðslu á ofest.is/finna-mida.
Endurgreiðslur og afbókanir
Eftir kaup á miða hefur þú 14 daga til að falla frá kaupunum og óska eftir fullri endurgreiðslu. Þetta á þó ekki við þegar minna en 14 dagar eru í viðburðinn; þá eru kaupin bindandi.
Sé hátíðinni aflýst er miðaeigendum boðnir sambærilegir miðar á nýrri dagsetningu eða full endurgreiðsla miðaverðs, að vali kaupanda. Endurgreitt er á sama kort og greitt var með.
Sé dag- eða tímasetningu hátíðarinnar breytt færast miðar sjálfkrafa á nýju dag- eða tímasetninguna. Henti hún ekki á kaupandi rétt á fullri endurgreiðslu; í tilkynningu um breytinguna geta verið sett tímamörk, að lágmarki 14 dagar, til að nýta þann rétt.
Breytingar á dagskrá einstakra atriða, til dæmis ef listamaður forfallast, teljast ekki veruleg breyting á hátíðinni og veita ekki rétt til endurgreiðslu.
Framsal og áframsala miða
Framsal miða er heimilt og fer fram í gegnum framsalskerfið á vefnum; nýr handhafi fær miðann þá sendan á sitt netfang og fyrri miði fellur úr gildi.
Óheimilt er að áframselja miða í hagnaðarskyni. Sé miði seldur með fjárhagslegum hagnaði af öðrum en viðburðarhaldara áskilur Októberfest ehf. sér rétt til að ógilda miðann án endurgreiðslu.
Takmarkaður miðafjöldi
Hámarksfjöldi miða í hverjum kaupum kemur fram í miðasölunni. Séu fleiri miðar keyptir umfram auglýst hámark á sama nafn, netfang eða greiðslukort áskilur Októberfest ehf. sér rétt til að ógilda þá miða sem umfram eru.
Hátíðarpassar
Hátíðarpassi veitir aðgang að viðburðum hátíðarinnar á gildistíma passans nema annað komi fram við kaupin, þó háð fjöldatakmörkunum hvers svæðis og viðburðar fyrir sig.
Aldurstakmark
Hátíðin er ætluð gestum 18 ára og eldri. Um aldurstakmörk fer að öðru leyti eftir útivistarreglum barnaverndarlaga og áfengislöggjöf. Gestir geta þurft að framvísa gildum skilríkjum við inngang.
Tölvupóstur
Með kaupum á miða samþykkir þú að fá senda tölvupósta sem varða kaupin og viðburðinn sjálfan, svo sem miðana þína og hagnýtar upplýsingar um hátíðina. Fréttir og tilboð eru aðeins send þeim sem skrá sig sérstaklega á póstlistann og í hverjum slíkum pósti er hlekkur til afskráningar.
Persónulegir munir
Októberfest ehf. ber ekki ábyrgð á persónulegum munum gesta fyrir viðburð, á meðan honum stendur eða eftir að honum lýkur.
Fyrirtækjaupplýsingar
Söluaðili og viðburðarhaldari er Októberfest ehf., kennitala 680726-1750, Sæmundargata 4, 102 Reykjavík.
Netfang: midar@ofest.is. Sími: 570-0850.
Persónuvernd
Við söfnum aðeins þeim upplýsingum sem þarf til að afgreiða og afhenda pöntun: nafni, netfangi, símanúmeri og upplýsingum um keypta miða. Gögnin eru ekki notuð í öðrum tilgangi og aldrei seld þriðja aðila.
Eftirtaldir vinnsluaðilar koma að þjónustunni: Landsbankinn og Verifone annast kortagreiðslur, Resend sendir tölvupósta og vefurinn er hýstur hjá Vercel með gagnageymslu hjá Neon. Vinnslan fer fram innan EES eða á grundvelli viðeigandi flutningsheimilda samkvæmt persónuverndarlögum. Hver vinnsluaðili fær aðeins þau gögn sem þjónusta hans krefst.
Sölugögn eru varðveitt í sjö ár í samræmi við bókhaldslög og að þeim tíma liðnum er þeim eytt.
Þú átt rétt á aðgangi að gögnum þínum, leiðréttingu þeirra og eyðingu eftir því sem persónuverndarlög heimila og getur auk þess kvartað til Persónuverndar. Fyrirspurnum um persónuvernd er svarað á netfanginu midar@ofest.is.
Öryggi kortaupplýsinga
Kortaupplýsingar eru slegnar inn á öruggri greiðslusíðu Verifone og fara aldrei um vefþjóna Októberfest. Vinnsla kortagreiðslna uppfyllir PCI DSS öryggisstaðalinn hjá Verifone og Landsbankanum og öll samskipti eru dulkóðuð með TLS.
Spurningar um skilmála eða persónuvernd sendist á midar@ofest.is.