← Lineup

Lineup 2026
Izleifur
Ísleifur Eldur Illugason gengur undir listamannsnafninu Ízleifur og hefur verið að gera tónlist um margra ára bil. Hann fór að pródúsera tónlist fyrir aðra eftir að hafa byrjað að fikta við tónlist í menntaskóla og ákvað svo að fara að rappa og syngja sjálfur. Ízleifur gaf út sína þriðju plötu, 100&Einn, í byrjun árs. Platan er hans lengsta til þessa og sækir innblástur í uppeldishverfi hans, 101 Reykjavík. Á plötunni tekst Ízleifur á við ýmsar erfiðar tilfinningar og persónuleg málefni.
Miðasalan er opin
Sjáðu Izleifur á Októberfest
10.–12. september 2026 · Vatnsmýrin, Reykjavík
Kaupa miða