Lineup
Páll Óskar

Lineup 2026

Páll Óskar

Páll Óskar er þekktastur fyrir að syngja ballöður, diskó, hefðbundin íslensk lög og teknó. Hann gaf út sinn fyrsta sólódisk, Stuð árið 1993 á meðan hann var í New York og átti auk þess feril sem söngvari með hljómsveitum eins og Milljónamæringunum og Casino. Önnur sólóbreiðskífa, Palli, var mest seldi diskurinn á Íslandi árið 1995 og 1996 kom út Seif. Páll átti sumarsmellinn Ástin dugar með hljómsveitinni Unun árið 1995. Páll Óskar varð alþjóðlega þekktur þegar hann söng lagið „Minn hinsti dans“ framlag Íslands til Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva 1997. Breiðskífa hans Allt fyrir ástina kom út árið 2007 og varð metsöluplata.

Miðasalan er opin

Sjáðu Páll Óskar á Októberfest

10.–12. september 2026 · Vatnsmýrin, Reykjavík

Kaupa miða